Nesfrakt

Fréttir

Nesfrakt

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

 

nesfrakt1Nesfrakt er öflugt flutningafyrirtæki sem býður uppá daglegar ferðir á milli Akureyrar og Reykjavíkur með tengingu við aðra staði á landinu.
Nesfrakt býður uppá fjölbreyttar þjónustuleiðir sem sníða má að þörfum hvers og eins viðskiptavinar á sem hagkvæmasta máta.
Starfsmenn fyrirtækisins hafa mikla reynslu og þekkingu á öllu sem viðkemur flutningum og veita smáatriðum og nákvæmni mikla athygli.


Okkar aðalstyrkur er hátt þjónustustig við viðskiptavini okkar.
Megin markmið fyrirtækisins er að fullnægja þörfum viðskiptavina sinna, starfsmanna og eigenda.

 

Blue Water Shipping semur við Nesfrakt

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

blue waterBlue Water Shipping hefur gert fimm ára samning við Nesfrakt um allan innanlandsflutning. Samningurinn felur í sér að Nesfrakt sjái um dreifingu á landsvísu á öllum vörum sem koma með Norrænu til Seyðisfjarðar.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Nesfrakt en þar kemur einnig fram að verðmæti samningsins er rúmur milljarður króna. Hann er til fimm ára með möguleika á framlengingu að þeim tíma liðnum.

„Þetta er gríðarlega mikilvægur samningur fyrir Nesfrakt og mikil viðurkenning fyrir fyrirtækið en Nesfrakt hefur verið í miklum vexti eftir hrun,“ segir Arnar Þór Ólafsson, framkvæmdastjóri Nesfrakt.

Nesfrakt býður uppá daglegar vöruferðir frá Reykjavík á flesta staði á landinu.

 
ÞÚ ERT HÉR: Home Fréttir