Nesfrakt kaupir Austurfrakt
Nesfrakt ehf hefur keypt rekstur flutningafyrirtækisins Austurfrakt af hjónunum Brynjólfi Viðari Júlíussyni og Svönu Hansdóttur. Austurfrakt hefur verið með vöruflutninga á milli Austurlands og Reykjavíkur tvisvar í viku undafarin ár en Nesfrakt hefur séð um vörumóttöku fyrir Austurfrakt í Reykjavík frá árinu 2009. Með kaupunum styrkir Nesfrakt leiðarkerfi sitt með daglegum ferðum á Austurland og reglulegum ferðum frá Austurlandi á Akureyri og nærsvæði.
Með þessu kaupum styrkir Nesfrakt þjónustu við viðskiptavini félagsins með föstum vöruferðum í flest bæjarfélög á landinu.
Upplýsingar um Austurfrakt: www.austurfrakt.is
Allar nánari upplýsingar veitir Arnar Þór Ólafsson í síma 773-1630 eða í Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.