Við höfum tekið í notkun nýtt kerfi við skráningu sendinga, en það er hugsað til þess að minnka pappírsflóðið í kringum starfsemina, jafnt okkar sem ykkar. Öll skráning sendinga er því rafræn, en að sjálfsögðu tökum við á móti sendingum með gömlu góðu fylgibréfunum. Allir geta skráð sína sendingu í kerfið sem þarf síðan að staðfesta við móttöku á vöruflutningastöð.
Viðkomandi þarf að skrá sig inn sem notanda ath. innskráning er nafn og upplýsingar um sendanda vöru ekki einstaka starfsmenn, fylla þarf í allar upplýsingar og athuga að ekki skal nota bil eða bandstrik í kennitölu,
Allar upplýsingar um sendanda og viðtakanda eru forskráðar í kerfið svo ef hann hefur notað þá aður koma þær sjálfkrafa upp ef skrifað er byrjun nafns.
Ath ef fyrirtækið sem skráð er td. í Reykjavík er með aðsetur líka á Akureyri og á að fá pakkann þangað verður að breyta heimilisfangi og póstnúmeri þannig að varan skráist á réttan stað.
Nesfrakt er öflugt flutningafyrirtæki sem býður uppá daglegar ferðir á milli Akureyrar og Reykjavíkur með tengingu við aðra staði á landinu í gegnum Vöruflutningastöðina VFS.
Nesfrakt býður uppá fjölbreyttar þjónustuleiðir sem sníða má að þörfum hvers og eins viðskiptavinar á sem hagkvæmasta máta.
Starfsmenn fyrirtækisins hafa mikla reynslu og þekkingu á öllu sem viðkemur flutningum og veita smáatriðum og nákvæmni mikla athygli.
Okkar aðalstyrkur er hátt þjónustustig við viðskiptavini okkar.
Megin markmið fyrirtækisins er að fullnægja þörfum viðskiptavina sinna, starfsmanna og eigenda.
Okkar gildi:
· Öryggi
· Skila ávalt 100%
· Heiðarleiki
· Dugnaður – “Ekkert mál” andi
Hvernig við framfylgjum okkar gildum:
· Gæðastjórnun
· Innra eftirlit
· Tækni
· Góð samskipti
Okkar stefna er ekki að vera stærsta flutningafyrirtækið heldur það besta.